Barnateppi/Prjónað fyrir minni máttar

Friday, August 14th, 2009

Nú eru komnir svo margir bútar uppi í Norræna húsi fyrir “Prjónað til góðs 2009″ að hægt er að byrja að sauma saman í fyrsta teppið.

Það á eftir að vera gaman að raða saman bútunum sem eru í öllum stærðum og prjónfestum, -margar hendur vinna einnig fallegt verk.

Sniðugt getur verið fyrir saumaklúbba og aðra prjónahópa að hjálpast að við að búa til teppi og skemmt sér saman yfir að raða saman í persónuleg teppi. Ég mæli með með myndinni How to make an American Quilt í þessu samhengi.

Gaman væri að fá að heyra í saumaklúbbum sem vilja vera með í þessu gefandi og skemmtilega verkefni.

Prjónakörfur prjónað til góðs

Wednesday, July 15th, 2009

Prjónað til góðs 2009 fer vel af stað. Núna eru körfur á Kaffi Hvönn, Norræna húsinu, og Kaffitári, Þjóðminjasafninu. Þeir sem vilja fá körfu á kaffihúsið sitt geta haft samband við mig en einnig ætti að vera auðvelt að snapa að sér garni og nokkrum prjónum og hvetja fólk til að prjóna. Einnig er hægt að prjóna bút heima hjá sér og senda mér eða niður í Nálina, laugavegi.

Prjónað til góðs 2009

Friday, July 3rd, 2009

Prjónað til góðs verkefnið byrjaði á “prjónum úti” daginn sl. og safnaðist þá heilmikið garn. Nú eru komnar prjónakörfur í Gróður-kaffi-húsið fyrir utan Norræna húsið og á Kaffi Tár í Þjóðminjasafninu, fleiri körfur munu dúkka upp síðar. Ég hvet alla til þess að koma upp prjónakörfum á sínu kaffihúsi, sama hvort þið eruð fastakúnnar eða kaffihúsaeigendur. Ég sé síðan um að safna bútum og það er líka hægt að senda þá í Nálina, en verkefnið gengur einmitt út á að prjóna bútasaumsteppi.

Þetta er auðvelt verkefni að taka þátt í:

1. Gefðu garn

2. Gefðu prjóna

3. Gefðu prjónaskap

Teppin sem til verða úr bútunum verða síðan saumuð saman og seld í desember, gjafamánuðinum mikla.

Allur ágóði fer til góðgerðamála.

Gaman væri ef þið sem senduð mynduð senda upplýsingar um ykkur sjálf með.

Þið sem komið ykkur sjálf upp körfu getið prentað út þessar leiðbeiningar.=> leic3b0beiningar_prjonac3b0-til-goc3b0s