Knitticisms
Thursday, November 6th, 2008
Bókin Knitticisms…And other purls of Wisdom er bara snilld. Ég er búin að vera að fletta í henni og auk þess að vera yfirfull af sniðugum myndum að þá eru ansi mörg góð ráð fyrir prjónafólk t.d. er tíundaðar ástæður til þess að byrja á nýju verkefni án þess að klára það gamla. Það þykir góð ástæða að byrja á nýju verkefni ef barnið sem átti að fá ungbarnapeysuna er að fara að fermast í vor. Góðar ástæður til að kaupa garn eru þær að garn er einangrandi fyrir húsið, ein dokka í viðbót skaðar svo sem engan og þú ert að styðja ullariðnaðinn með kaupunum. Að lokum eru talin upp teikn sem gætu bent til þess að þú sért forfallinn prjónari t.d. ef þú eyðir meiri pening í garn heldur en í mat og ef þú ert farin að horfa girndaraugum á feld hundsins þíns að þá ertu í vondum málum.
