Gott gengi prjónsins
Tuesday, October 7th, 2008Nú er gott að byrja að fitja upp á jólaprjóninu, gefa pottaleppa, sokka, vettlinga, barnahúfur, prjónuð buff/hálskraga og margt fleira. Íslenska ullin er ekki svo dýr og fyrir utan hve prjónið er hagkvæmt að þá er það líka hollt og streitulosandi. Gefum okkur góðan tíma með prjónunum, kveikjum á kerti í skammdeginu og höfum það notalegt.
Ég set brátt inn sniðugar prjónauppskriftir sem henta í jólagjafir.
Góðar stundir.
