Prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins
Wednesday, November 5th, 2008Á morgun er komið að mánaðarlegu prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins, á Amokka Hlíðarsmára 28, og hvet ég alla til að mæta. Ég sjálf kemst reyndar ekki í þetta sinnið en mæti galvösk í desember með eitthvað jólalegt. Reyndar væri gaman að hafa prjónakaffi í miðbæ Reykjavíkur og gaman væri ef eitthvað kaffihúsið tæki upp á því að halda prjónakvöld. Reyndar er ekkert því til fyrirstöðu að mæla sér mót á kaffihúsi og taka prjónið með. Um daginn var ég á Kaffi Hljómalind og á öðru hverju borði var fólk að prjóna. Húrra fyrir því!
![]()

