Prjónaæðið í hápunkti?

Friday, November 6th, 2009

Myndin er frá Knit Café í Los Angeles, USA.
Það hefur verið einstaklega skemmtilegt að fylgjast með uppsveiflu prjónsins, oft held ég að hápunktinum séð náð en efast nú um það, held að hápunktinum verði fyrst náð þegar alvöru prjónakaffihús opnar í Reykjavík. Alvöru prjónakaffihús er svo kósý að meira segja þeir sem ekki prjóna vilja hittast þar í kaffi. Alvöru prjónakaffihús er eins og bókakaffi, nema í stað bóka er hip og kúl garn og prjónabækur á boðstólum. Á alvöru prjónakaffihúsi er hægt að kúldrast í sófa með prjónana sína, sötra gæðakaffi og spjalla við aðra prjónarar. Ji hvað mig hlakkar til. Hvenær ætli það opni? Nú ætti prjónabransinn að hafa efnast eitthvað á aukinni garnsölu og getað rúllað upp svona stað með einni hendi, eða hvað? Flókið einfalt.

Heitt á prjónunum- á Ísafirði

Monday, June 15th, 2009

Nýtt prjónakaffihús hefur opnað og heitir því bráðskemmtilega nafni: Heitt á prjónunum. Það er að finna á Ísafirði en þangað er ég einmitt að fara  í sumar/haust. Geri mér að sjálfsögðu fer á Heitt á prjónunum og fæ mér kaffi og kíki á garnið. Til hamingju með þetta Ísfirðingar. 

Knit Lab- Prjónakaffihús í Stokkhólmi

Wednesday, August 6th, 2008

Knit Lab er prjónakaffihús í Stokkhólmi og af myndunum að dæma að þá virkar það mjög huggulegt. Tékkið á þessu þegar þið eruð í Stokkhólmi.

Erlend prjónakaffihús

Monday, June 16th, 2008

prjónabók Knit Café

Ég setti upp prjónakaffihús í Norræna húsinu í tvær vikur sept/okt 2007 og var það opið samhliða samsýningunni “Handverkshefð í Hönnun”. Saman studdu þessir atburðir hvorn annan og var nóg að gera í þessar tvær vikur. Innblástur minn að þessu verkefni var fenginn af prjónakaffihúsum erlendis en þau hafði ég rekist á er ég vafraði um lendur netsins. … halda áfram að lesa Erlend prjónakaffihús

Prjón í nýju samhengi

Wednesday, January 30th, 2008

Um miðja nótt síðla árs 2006 laust niður í huga mér hugmynd, eða réttara sagt mjög sterk þrá. Mig langaði að búa til prjónakaffihús, rými þar sem ég gæti sameinað kaffihúsahangs og prjónaskap, ég sjálf vildi getað dvalið í þannig rými. Þegar þetta var bjó ég í Danmörku, Kaupmannahöfn, og hafði kynnst heimilislegum kaffihúsum og einnig hafði ég hellt mér út í prjónaskapinn að nýju eftir langt hlé. Það var svo snemma árs 2007 að ég sendi Norræna húsinu póst um sjálfa mig … halda áfram að lesa Prjón í nýju samhengi