Prjónum til góðs á “prjónum úti deginum”

Friday, May 29th, 2009

Kæru Prjónarar,

Stillum saman strengi okkar og prjónum til góðs fyrir líknafélög í landinu. Leitað er til allra prjónara nær og fjær eftir aðstoð.

Á prjónum úti deginum verður hleypt af stokkunum prjónað til góðs söfnun. Hún snýst um að safna saman prjónuðum og hekluðum bútum sem seinna verða saumaðir saman í teppi. Teppin verða svo boðin upp og ágóðinn rennur til góðgerðafélaga. Til þess að sem flestir geti tekið þátt langar okkur að fá kaffihúsin með okkur í lið og koma þar upp prjónakörfum og prjónum ásamt grunnleiðbeiningum í prjóni. Þá geta kaffihúsagestir tekið í prjónana og prjónað nokkrar umferðir eða jafnvel heilan bút. 

 

Þetta þýðir mikið af garni, körfum og prjónum og gaman væri ef allir prjónarar gætu séð af s.s. einni dokku úr binginum og kannski prjónum. Enn er verið að leita að styrktaraðilum til samstarfs en þetta er upphafið. 

Á prjónum úti deginum munum við formlega hefja Prjónum til góðs verkefnið og þá væri gaman að geta safnað saman garni í bing. 

Þið sem viljið hefjast handa nú þegar við góðverkin getið sent mér garn, bút eða prjóna upp í Norræna hús. Einnig væri gaman ef þið getið komið upp prjónakörfu sjálf á kaffihúsum í nágreni við ykkur-tekið mynd af körfunni og sent mér. 

Ég hef fulla trú á að prjónarar taki þátt í þessu verkefni og gaman verður að fylgjast með þessu í vetur en uppskeran verður um jólin þegar einmitt er svo gott að gefa að sér.

Með von um góð viðbrögð, Ilmur. 

Prjónafróðleikur

Wednesday, July 9th, 2008

Margar íslenskar vefsíður sérhæfa sig í fróðleik um prjón, prjóna, prjónaaðferðir, og nýjungar. Hér eru nokkrar. … halda áfram að lesa Prjónafróðleikur