Ný íslensk uppskrift

Tuesday, June 23rd, 2009

Í dag keypti ég æðislegt einbandsgarn í fallegum fjólubláum lit. Ég er fyrir löngu fallin kylliflöt fyrir einbandi og er mjög hrifin af þessum nýju litum. Mér fannst ég vera rosalega flippuð að kaupa plómufjólubláa garnið; Fannst ég vera færa mig út “comfort zóninu” þar til ég kom heim og sá að helmingurinn af fataskápnum er fjólublár (hinn helmingurinn er grænn). 

 

Ég hugsa að ég prjóni mér aðra Miðju úr einbandinu en kannski ég nota afganginn í þennan sæta skokk sem vann Prjóniprjón uppskriftasamkeppni. Húrra fyrir nýjum íslenskum prjónauppskriftum! Hér er blogg prjónakonunnar sem á heiðurinn af þessari fínu uppskrift. Tékkið á!

Dömupeysa í febrúar

Monday, February 23rd, 2009

Kæru lesendur Prjónanets. 

Afsakið lægðina á síðunni en vegna anna hefur ekki verið mikið líf hér sem er alveg ótækt. Ég er rosalega ánægð að fá fyrirspurnir um hitt og þetta og reyni að svara þeim með bestu getu. Ég er líka rosalega glöð þegar einhver gjafmildur deilir með sér sniðugu efni um prjón. Um daginn fékk ég sannkallaðan pakka í tölvupósti. Ragga Eiríks hjá prjóniprjón sendi mér uppskriftina að February Lady Sweater á íslensku sem hún sjálf sá um að þýða! Takk, fyrir Ragga!
Nú geta allir prjónarar prjónað Dömupeysu í febrúar á sig og sína.

 

domupeysa-i-februar í þýðingu Röggu Prjóniprjóns

Ný prjónabók á íslensku

Monday, December 1st, 2008

Það er alltaf gaman að komast í góðar prjónabækur og enn betra þegar þær eru á íslensku. Nú er að koma út í desember bókin Prjóniprjón. Fræðist nánar um það hér þar sem bloggað er um bókina.