Alpakka sjal

Saturday, May 2nd, 2009

Í morgun skellti ég mér í Nálina á prjónakaffi. Þar var fríður hópur prjónara sem fékk verðskuldaða athygli túrista. Ég hugsa að það líði ekki að löngu fyrr en íslendingar verði þekktir ekki bara sem víkingar heldur einnig sem félagslyndir prjónarar.

Í Nálinni var margt af gómsætu garni og gat ég varla tekið hendurnar af mjúku alpakka garni. Ég var hins vegar ekki viss um hvað nákvæmlega ég gæti prjónað úr því svo ég fór á Ravelry, prjónamentor minn, og fann þar uppskrift um leið. Ég leitaði í patterns af shawl og svo innan þeirrar leitar af alpakka og upp komu sjöl úr alpakka.

Ég ætla að prjóna þetta hér: Swallowtail shawl

Gleðilegt sumarprjón

Thursday, April 23rd, 2009

Gleðilegt sumar kæru prjónarar. Þó nú fari að hlýna skulum við prjónarar ekki örvænta því hér á norðurhjara veraldar er prjónles í tísku allt árið um kring og því ekki úr vegi að fitja upp sérlegum sumarflíkum. … halda áfram að lesa Gleðilegt sumarprjón

Uppskriftir á vordögum

Saturday, April 18th, 2009

Er búin að sveima um netið og rakst á nokkrar dásamlegar vorlegar uppskriftir.

Hér eru Þær:
Grænt vesti
Slá
wabi sabi dásemdar sjal/trefill

Njótið!

Uppskrift að færeysku sjali

Wednesday, October 29th, 2008

Í tilefni þess að færeyingar eru nú að rétta okkur hjálparhönd á erfiðum tímum ætla ég að vísa á uppskrift að fallegu færeysku sjali. Prjónið er öflugt í Færeyjum og sagði það mér færeysk kona, sem ég vann með fyrir stuttu, að í öllum frímínútum í grunnskóla hafi stelpurnar setið og prjónað. Uppskriftir ganga manna á millum munnlega og eru ekki alltaf skrifaðar niður. Þetta sagði hún mér og ég sel það ekki dýrara en ég keypti það. Eftir því sem ég best veit er hægt að fá færeyska ull bæði í Hagkaupum og í Nálinni.
Færeyskt sjal.

 

Á myndinni hér efst er peysan sem Sofie Gråbøl gerði fræga í ,þáttunum Forbrydelsen, eftir hönnuðina Gudrun og Gudrun. Og seinni myndin er af sjalinu.

Sjöl fyrir haustið

Monday, August 25th, 2008

 

Ekkert er eins dásamlegt og árstíðaskipti og sérstaklega er haustið fallegt. Það er farið að kólna aðeins en þó er ekki nauðsynlegt að klæðast mörgum lögum af fatnaði né vetrarjakka. Til að geta notið sumarjakkanna aðeins lengur að þá er tilvalið að vefja um sig notalegu sjali. Þau henta líka fullkomlega undir regnkápurnar. Hér að neðan eru nokkrar ókeypis uppskriftir sem ég fann á netinu með hjálp ravelry. Sjálf er ég að prjóna þetta hérna sjal.

Njótið