Hlýjar og góðar hneppupeysur

Sunday, October 12th, 2008

Barnapeysa í dömustærð

Barnapeysa í dömustærð

Nammi, namm. Ég elska snollaðar gollur eða litlar hneppupeysur og fer nánast ekki út án þess að vera í einni slíkri enda er farið að kólna. Hér eru nokkrar uppskriftir sem mér þykja mjög fínar. Gjörið svo vel. … halda áfram að lesa Hlýjar og góðar hneppupeysur

Góð gjörð - Prjónað til góðs á Menningarnótt

Thursday, August 7th, 2008

Það styttist í Menningarnótt og eins og áður hefur komið fram að þá er prjón á dagskrá Menningarnætur í ár. Prjónarar eru hvattir til að prjóna til góðs í Hallargarðinum milli 14:00 og 17:00 á Menningarnótt. Fólk er hvatt til að koma með bleikt garn og fitja upp á einhverju til styrktar Krabbameinsfélaginu. … halda áfram að lesa Góð gjörð - Prjónað til góðs á Menningarnótt

Síðsumarsprjón

Tuesday, August 5th, 2008

Sumarið er auðvitað enn í háum hæðum en nú húmar að og haustið er á næsta leyti. Þess vegna er tilvalið að fitja upp á hlýjum vettlingum, sokkum, húfum og treflum. … halda áfram að lesa Síðsumarsprjón

Bobbingatrefill

Thursday, July 24th, 2008

Hér að neðan er þráður á flotta uppskrift á knitty.com og gæti verið sniðug í verkefni fyrir Prjónað til góðs á Menningarnótt 2008.. Mér var bent á hana á ravelry.com, takk fyrir það.
Knitty.com hefur gefið út fullt af uppskriftum sem vekja athygli á baráttunni gegn brjóstakrabbameini og er þessi ein af þeim.

Bobbingatrefill

Bleiki borðinn

Friday, July 18th, 2008

Hér eru nokkrar uppskriftir sem sniðugt er að prjóna á Prjónum til góðs: Menningarnótt 2008 viðburðinum. Bleiki borðinn er tákn baráttunnar gegn brjóstakrabbameini og hægt er að nálgast margar fríar uppskriftir sem innihalda bleika borðann. Á Prjónum til góðs viðburðinum 18. ágúst er einmitt snjallt að selja eitthvað beint af prjónunum og láta ágóðann renna til Krabbameinsfélagsins. Prjónum og gefum á Menningarnótt 2008. … halda áfram að lesa Bleiki borðinn

Prjónafróðleikur

Wednesday, July 9th, 2008

Margar íslenskar vefsíður sérhæfa sig í fróðleik um prjón, prjóna, prjónaaðferðir, og nýjungar. Hér eru nokkrar. … halda áfram að lesa Prjónafróðleikur

Jólagjafaprjón

Wednesday, July 2nd, 2008


Mörgum þykir ef til vill aðeins of snemmt að fara að huga að jólagjöfum. Ef þið ætlið að prjóna gjafir handa ykkar nánustu að þá er einmitt skynsamlegt að fara að viða að sér garni (namminamm) og uppskriftum í jólaverkefni. … halda áfram að lesa Jólagjafaprjón

Prjónað fyrir eldhúsið

Thursday, June 26th, 2008

Oft langar okkur ekki til að prjóna stór verkefni sem munu hugsanlega ekki vera tilbúin fyrr en eftir margar vikur ( eða mánuði) þess vegna getur verið skemmtilegt að svala prjónalönguninni í einföldum og hagnýtum verkefnum s.s. pottaleppum. Hér að neðan eru skemmtilegar eldhúsuppskriftir. … halda áfram að lesa Prjónað fyrir eldhúsið

Mason Dixon prjón

Friday, June 20th, 2008

Mason Dixon knitting eru Kay Gardiner og Ann Shayne. Þær kynntust í gegnum internetið á spjallsvæði tengdu Rowan garninu. Önnur býr í New York hin í Suðurríkjunum. Til þess að gera langa sögu stutta að þá þróuðust netsamskipti þeirra út í samvinnuverkefni og saman gáfu þær út bókina Mason Dixon Knitting árið 2006. Bókin er æðisleg og ekki aðeins er hún uppfull af hagnýtum uppskriftum heldur er hún stórskemmtileg aflestrar. Þær segja frá Prjónað til góðs verkefninu afghans for Afghans en … halda áfram að lesa Mason Dixon prjón

Amigurumi

Friday, June 20th, 2008

Amigurumi er heiti á japönskum hekluðum eða prjónuðum smáfígúrum og dýrum. Þau hafa oft mannlega ásýnd og eru afskaplega krúttleg. Þau eru oftast búin til í bútum og svo saumuð saman. Hér fyrir neðan eru þræðir á fríar amigurumi-uppskriftir og svo er líka hægt að mæla með bókinni: Amigurumi World: Seriously Cute Crochet eftir Ana Paula. … halda áfram að lesa Amigurumi

Nágranni minn Tótóró

Wednesday, June 18th, 2008

 

Síðasta sumar sá ég myndina Min Nabo Totoro og heillaðist ég algjörlega af Tótóró, einni af aðalsöguhetjunum. Þess vegna varð ég himinlifandi þegar ég fann urmul af prjóna- og heklmunstrum af Tótóró. … halda áfram að lesa Nágranni minn Tótóró

Gefins

Monday, June 16th, 2008

Ég elska netið. Það gefur endalaust af sér og eins og við er að búast er aragrúi uppskrifta gefins. Hér er listi yfir allar helstu síður sem deila fríum uppskriftum. Leitið innblásturs og fitjið upp á einhverju skemmtilegu. … halda áfram að lesa Gefins

Prjónað til góðs

Tuesday, March 18th, 2008

Frá árdögum prjónsins hafa prjónarar prjónað öðrum til góða. Þekkt er það að konur prjónuðu til styrktar hermönnum í fyrri heimstyrjöldinni og fengu þeir senda hlýja sokka frá föðurlandinu. Ameríski Rauði Krossinn útvegaði sömuleiðis garn og leiðbeiningar fyrir prjónara um gjörvöll Bandaríkin og hvöttu þannig prjónara áfram í að prjóna til góðs. Hér er hægt að nálgast uppskriftir … halda áfram að lesa Prjónað til góðs