Sunnudagsvettlingar og annar innblástur

Sunday, January 22nd, 2012

Uppskriftin er hér

Fengið hér

og þetta:

Þessi uppskrift hér að ofan heitir sunday mittens eða sondags votter og er hér / Ravelry. Prjónahimnraíkið.

-Ég hef lengi ætlað að prjóna Sunnudagsvettlinga, þeir eru án efa á top 10 “verðaðprjónaþetta” listanum.

Njótið sunnudagsins.

Prjónannáll 2008

Friday, December 26th, 2008

Þetta ár sem nú er að líða var afkastamikið í heimi prjónsins. Árin 2006 og 2007 einkenndust af grúski; Ég vafraði um prjón-net-heima og fann mig allt í einu í djúpum helli hlöðnum af myndum af prjónlesi, hugmyndum að uppskriftum og prjónareynslusögum fólks um veröld víða. Þessi ár fóru líka í að sanka að sér prjónabókum og voru þær taldar um daginn af betri helmingnum (sem hefur mismikla þolinmæði fyrir garninu sem finnst í ólíklegustu skúmaskotum og er vatnskassinn á klósettinu ásamt ruslaskápnum líklegast eini staðurinn sem ekki hefur geymt garn). Hann taldi þá 20 bækur og þá eru lopaheftin og Jaeger blöðin ekki meðtalin. 

Árið 2008 hefur farið í úrvinnslu á öllu grúskinu, ég keypti mér aðeins 1 prjónabók. Það er bókin Knit,Knit og get ég mælt með henni-hún er mín uppáhalds.

Hér verður gerð tilraun til að setja prjónlesið í línulega upptalningu sem er kannski andstætt eðli prjónsins-míns prjóns-þar sem það flæðir um allt í hringlaga flælkjum og sívalingum. … halda áfram að lesa Prjónannáll 2008

Nú skal prjóna, nú skal prjóna…

Tuesday, December 16th, 2008

…húfutetur og vettlinga. Létt-lopinn er að koma sterkur inn í jólagjafaprjóninu. Ég þvæ síðan prjónlesið uppúr hárnæringu svo það verði sérstaklega mjúkt. Nú hefur myndast talsverður rígur milli bæði ókláraðra verkefna og svo garns sem telur sig góðan kandidat í næsta verkefni. Ég hef íhugað að fitja upp á ca. 3 verkefnum í dag og láta þau fara í kapp-ef ég byggi ein myndi ég hugsanlega raða þeim upp víðsvegar um íbúðina á mismunandi starfsstöðvar og sjá hver væri fyrstur í mark. We call them pirates úr kambgarni er sigurstrangleg, Shell-Socks úr Knitting Vintage Socks eru einnig volgir, en hugsanlegt er að þau verkefni sem enn er ekki fitjað upp á beri vinninginn. Ég hef hug á að prjóna vettlinga eða húfu úr Debbie Bliss merino garni og veit ekki alveg hvar ég á að byrja. En svo er Dale-babyull að ibba sig og gerir sig líklega til að verða að grifflum/vettlingum. Hér eru uppskriftirnar.

Sænskir vettlingar
Sænskir fiskavettlingar

Síldarmunstursvettlingar

Svo er að vona að allir keppendur komist í mark svo fólk fái nú ekki ókláruð verkefni í pakkana sína.

Guðdómlegir vettlingar

Friday, November 28th, 2008

Ég ó-aði upp yfir mig þegar ég fann þessi vettlingamunstur á Ravelry og má til með að deila þeim með ykkur. Ég er ekki ein þeirra sem sitja á góðum fundi á netinu heldur er þessi síða hér, prjona.net, eingöngu ætluð til þess að deila með öðrum prjónurum því skemmtilega sem ég finn á netinu. Þannig að hér eru fallegustu vettlingar sem ég hef séð langalengi og get ekki beðið eftir að klára clapotis-ið’, skeljamunsturssokkana, húfuna og barnasokkana og og og …ó, ó, ó, …svo spennandi framundan á prjónunum. Góða helgi!
Sundagsvotter eftir Strikkepanja
Thrummed mittens eftir Hello Yarn
Heathermittens eftir Spillyjane

Hér eru myndir af fleiri vettlingum eftir Strikkepanja.

Hanskar og grifflur

Thursday, November 20th, 2008

Mynd af Fetching-grifflunum

Mynd af Fetching-grifflunum


Hér koma nokkrar uppskriftir að hönskum og grifflum. Ég er búin að vera að prjóna úr léttlopa og úr garni sem þarfnast prjóna í stræð 4,5 og þá finnst mér frábært að skipta algjörlega um gír og prjóna úr fíngerðu garni á t.d. prjóna nr. 2,5 -3,5. Nýlega kláraði ég léttlopakjól og er hálfnuð með sokkapar með útprjónsmunstri á prjóna nr. 2,5. Verði ykkur að góðu.

Fetching
Dashing
Endpaper mitts
Hanskar með útprjónsmunstri
Heklaðir vettlingar/grifflur
Kaðlahanskar í vintage stíl

Barnasokkar og nokkrir vettlingar

Monday, October 6th, 2008

Hér eru nokkrar uppskriftir að barnasokkum og vettlingum, góða skemmtun.

Barnasokkar með flottu stroffi
Barnasokkar á 2 prjónum
Ungbarnasokkar, mjög fallegir
Rósavettlingar

 

 

Síðsumarsprjón

Tuesday, August 5th, 2008

Sumarið er auðvitað enn í háum hæðum en nú húmar að og haustið er á næsta leyti. Þess vegna er tilvalið að fitja upp á hlýjum vettlingum, sokkum, húfum og treflum. … halda áfram að lesa Síðsumarsprjón